Monday, June 26, 2006
Klukkan er sjö, nú verða lesnar fréttir
Heilir og sælir góðir landsmenn, það er Páll Guðbrandsson sem talar í misbeinni útsendingu frá Kaupmannahöfn. Í fréttum er þetta helst:
Ungur maður að nafni Þórsteinn Sigurðsson heimsótti Guðnýju og Pál í vikunni. Heimsóknin var ekki óvænt og hafði hennar verið beðið með óþreyju í þónokkurn tíma. Doddi er systursonur Guðnýjar og kom til Kaupmannahafnar á þriðjudaginn og gisti hjá heimilsfólkinu á Brydes Allé áður en hann hélt til Hróarskeldu til að vera viðstaddur mikla tónlistarhátíð sem þar fer fram einu sinni á ári hverju. Guðný og Palli fylgdu Dodda um miðbæ Kaupmannahafnar og sýndi frænka hans honum nokkrar flottustu búðirnar við mikla hrifningu unga mannsins. Farið var út að borða á
víetnömskum veitingastað þar sem var haft eftir Dodda: "Eruð þið viss um að það sé í lagi meða þetta, að þetta séu ekki kettir?" síðan var kíkt í Tívolí og farið í partý í hin nýju húsakynni Cosmógroupforstöðukvenna á Vesterbro. Aðspurð hafði Guðný þetta um málið að segja: "Já hann kom hérna út og við gerðum fullt af skemmtilegum hlutum saman, þetta var bara ógó fínt." Palli kaus að tjá sig ekki um málið að svo stöddu en hefur lofað fjölmiðlum yfirlýsingu innan 48 tíma.
Eins fram kom fyrr í fréttatímanum verður Hróarskelduhátíðin haldin um helgina og í raun alla þessa viku, því tjaldstæðið opnaði á sunnudaginn. Eftir því sem við komumst næst keyptu Palli og Guðný sér tjald á góðu verði hér úti og voru svo heppin að Bragi Brunavörður er einn þeirra sem halda á tjaldsvæði hátíðarinnar á sunnudeginum og bauðst hann til að tjalda þessu nýja tjaldi þeirra ásamt öðru samskonar tjaldi sem hann og Inga höfðu fengið hjá sama heildsala. En í þann mund sem Bragi hóf tjöldun reið ógæfan yfir. Tjöldin sem miðað við verð höfðu virst lítil og ómerkileg reyndust risastór og illviðráðanleg. Sjónarvottar segja að á tjaldsvæði Hróarskeldu hafi tvö sirkustjöld skyndilega skotið niður rótum. Eftir að tjöldun var lokið og sjónarvottar hættu sér að tjöldunum fannst Bragi í öðru tjaldinu en þangað hafði hann komist við illan leik. Var hann hrakinn og nokkuð dregið af honum og dvelur hann nú á tjaldhremmingardeild Hróarskelduspítala og er líðan hans með atvikum.
Jan Ole Skedbanegaard (sjá mynd) varð vitni af tjölduninni: "Ég sá hann leggja frá sér tvo poka og allt virtist með felldu en er hann opnaði pokana spruttu út þessu risatjöld og fyrr en varði var hann horfinn í tjaldskýi. Ég var búinn að fylgjast með honum tjalda nokkrum tjöldum fyrr um daginn og hann virtist mjög vanur en þegar um tjöld af þessari stærðargráðu er að ræða geta jafnvel reyndustu tjaldarar orðið undir." Þess má geta að Jan Ole er sjálfur með 20 ára tjöldunarreynslu og segist aldrei hafa séð annað eins. Við verðum með frekari fréttir af líðan Braga þegar þær berast.
Að lokum skulum við huga að veðri en það er góð spá framundan, einhverjir skúrir gætu orðið á fimmtudag en ekki eru miklar líkur á því, á föstudag, laugardag og sunnudag er síðan spá heiðskýru og 20-25 stiga hita.
Fleira er ekki í fréttum að sinni, veriði sæl.
Ungur maður að nafni Þórsteinn Sigurðsson heimsótti Guðnýju og Pál í vikunni. Heimsóknin var ekki óvænt og hafði hennar verið beðið með óþreyju í þónokkurn tíma. Doddi er systursonur Guðnýjar og kom til Kaupmannahafnar á þriðjudaginn og gisti hjá heimilsfólkinu á Brydes Allé áður en hann hélt til Hróarskeldu til að vera viðstaddur mikla tónlistarhátíð sem þar fer fram einu sinni á ári hverju. Guðný og Palli fylgdu Dodda um miðbæ Kaupmannahafnar og sýndi frænka hans honum nokkrar flottustu búðirnar við mikla hrifningu unga mannsins. Farið var út að borða á
víetnömskum veitingastað þar sem var haft eftir Dodda: "Eruð þið viss um að það sé í lagi meða þetta, að þetta séu ekki kettir?" síðan var kíkt í Tívolí og farið í partý í hin nýju húsakynni Cosmógroupforstöðukvenna á Vesterbro. Aðspurð hafði Guðný þetta um málið að segja: "Já hann kom hérna út og við gerðum fullt af skemmtilegum hlutum saman, þetta var bara ógó fínt." Palli kaus að tjá sig ekki um málið að svo stöddu en hefur lofað fjölmiðlum yfirlýsingu innan 48 tíma. Eins fram kom fyrr í fréttatímanum verður Hróarskelduhátíðin haldin um helgina og í raun alla þessa viku, því tjaldstæðið opnaði á sunnudaginn. Eftir því sem við komumst næst keyptu Palli og Guðný sér tjald á góðu verði hér úti og voru svo heppin að Bragi Brunavörður er einn þeirra sem halda á tjaldsvæði hátíðarinnar á sunnudeginum og bauðst hann til að tjalda þessu nýja tjaldi þeirra ásamt öðru samskonar tjaldi sem hann og Inga höfðu fengið hjá sama heildsala. En í þann mund sem Bragi hóf tjöldun reið ógæfan yfir. Tjöldin sem miðað við verð höfðu virst lítil og ómerkileg reyndust risastór og illviðráðanleg. Sjónarvottar segja að á tjaldsvæði Hróarskeldu hafi tvö sirkustjöld skyndilega skotið niður rótum. Eftir að tjöldun var lokið og sjónarvottar hættu sér að tjöldunum fannst Bragi í öðru tjaldinu en þangað hafði hann komist við illan leik. Var hann hrakinn og nokkuð dregið af honum og dvelur hann nú á tjaldhremmingardeild Hróarskelduspítala og er líðan hans með atvikum.
Jan Ole Skedbanegaard (sjá mynd) varð vitni af tjölduninni: "Ég sá hann leggja frá sér tvo poka og allt virtist með felldu en er hann opnaði pokana spruttu út þessu risatjöld og fyrr en varði var hann horfinn í tjaldskýi. Ég var búinn að fylgjast með honum tjalda nokkrum tjöldum fyrr um daginn og hann virtist mjög vanur en þegar um tjöld af þessari stærðargráðu er að ræða geta jafnvel reyndustu tjaldarar orðið undir." Þess má geta að Jan Ole er sjálfur með 20 ára tjöldunarreynslu og segist aldrei hafa séð annað eins. Við verðum með frekari fréttir af líðan Braga þegar þær berast.Að lokum skulum við huga að veðri en það er góð spá framundan, einhverjir skúrir gætu orðið á fimmtudag en ekki eru miklar líkur á því, á föstudag, laugardag og sunnudag er síðan spá heiðskýru og 20-25 stiga hita.
Fleira er ekki í fréttum að sinni, veriði sæl.
Sunday, June 18, 2006
17.júní fagnaður og bara almenn gleði

Við héldum 17.júní hátíðlegan með að fara niður á Amager-Strand í Íslendingafögnuð. Þar voru fjölmargir Íslendingar samankomnir til að hlusta á íslenska þjóðsönginn og ýmsar ræður, sjá samba og magadanssýningu, sýna sig og sjá aðra.
Veðrið lék við okkur og var algjör steik við ströndina. Dagurinn var mjög skemmtilegur, skemmtilegasti 17.júní síðan að ég var lítil stúlka. Eini svarti bletturinn á deginum var að allt íslenska nammið var búið þegar við mættum á svæðið...hverslags bissness er það...fullt af Íslendingum en nammið var uppselt á 15 mínútum.ARG. Ég tók samt fljótlega gleði mína á ný vegna þess að liðið hans Palla vann blakkeppnina. Palli var mjög ánægður með að vera næstum tveir metrar á hæð þegar hann rakaði inn blakstigunum :)
Eftir að við vorum búin að sóla okkur í næstum 5 tíma var haldið heim til Bjarna sem var með mér í MS. Ég varð alveg svakalega glöð þegar að hann dró fram fulla skál af íslensku nammi híhí. Þar var spilaður smá póker og síðan fórum ég og Palli að hitta systurnar þrjár, Júlíu, Ingu og Guðrúnu en þær voru á íslensku kvöldi á Salonen. Eins og þið sjáið hérna á myndinni til hliðar þá gengur mikið á hjá stúlkunum. Þessi mynd var tekin til heiðurs Ingibjörgu sem er væntanleg til Köben eftir 9 daga og hlakkar okkur öllum til :)Hafið þið smakkað hollenskan mat? Það hef ég og veit að þeir nota mjög mikið krydd í matargerðina :) Við fórum á hollenskan veitingarstað á föstudagskvöldið ásamt Júlíu, Ara, Rut og Stebba. Þau pöntuðu sér sérréttinn sem var lamabakjöt í súpu, með hrísgrjónum og alskyns meðlæti t.d. melónum, banana, gúrku. Það fylgdi líka bakki með 10 mismunandi kryddjurtum, kókos, ristuðum kókos og fleira. Við vissum nú ekki almenninlega hvað við áttum að gera við allt þetta krydd og sturtuðum því yfir hrísgrjónin...mælum með ristuðum kókos með hrísgrjónum og banana :) Eftir matinn var farið á stað þar sem tilboð voru á barnum (auðvitað) og skellt í sér Mojito áður en við héldum heim á leið.
Í dag, sunnudag, fór ég og hitti Elísabetu og vin hennar sem heitir Varði í H.C.Örested garðinum. Dagurinn var mjög fínn og afslappandi. Þá er vinnudagurinn á morgun en á þriðjudaginn kemur Doddi frændi í heimsókn. Vei vei vei. Þá verður gert eitthvað skemmtilegt :)
Nýjar myndir undir Myndir 1.
Thursday, June 15, 2006
Í sól og sumaryl ég samdi þennan póst.......

Já sælt veri fólkið, það er Páll Guðbrandsson fréttaritari sem skrifar frá Kaupmannahöfn. Á þriðjudaginn kláraði ég síðasta prófið mitt og var það mikill léttir enda er maður vanur að vera búinn minnst mánuði fyrr. Ekki bætti úr skák að síðustu tvær vikurnar er búið að hlýna jafnt og þétt hér úti og fer hitinn rétt niðrí 13-15 gráður um næturnar en er annars mill 20 og 30. Þetta er farið að verða eins og á Mallorca, sængurnar eru komnar uppí skáp og maður sefur í svitabaði með lak yfir sér.
Á laugardaginn seinasta var eins og venjulega fótboltaleikur hjá FC Island og að venju vaktaði Gíraffinn miðjuna árvökull en jafnframt grimmur. Guðný kom að horfa á leikinn ásamt Gulla og Laufey og fleiri aðstandendum leikmanna. Ástæða þess var að eftir leikinn grilluðu allir leikmenn og aðstandendur saman á Solbakken kollegíinu. Eftir grillið var horft á Argentínu sigra Fílabeinsströndina. Eftir það var svo spilað pool og léttur póker tekinn áður en menn héldu heim á leið.
HM er í fullum gangi og er ég búinn að horfa á nokkra leiki og er þetta mjög skemmtilegt mót enn sem komið er. Þau lið sem hafa heillað mig mest eru Holland, Portúgal og Króatía og náttúrulega Ekvador sem hafa heldur betur komið öllum nema sjálfum sér á óvart. Áfram Ekvador!!! Ha? Max? Brasilía eru vonbrigðin hingað til og það að þeir leikir sem ég sá í fyrstu umferð voru litaðir af meiri leikaraskap en ég hef séð á nokkru HM. Mér finnst að eins og með gróf brot megi eftirá dæma menn í bann ef þeir sýna af sér leikaraskap, annars hafa þessir menn enga hvatningu til að hætta þessu. Ef ég fengi að ráða öllu þá yrðu þessir menn settir í gapastokk á einhverju torgi með beran bossan og ég myndi útdeila rotnum ávöxtum fyrir framendann og krikkettkylfum fyrir afturendann.
Í gær fórum við síðan yfir til Svíðþjóðar og vorum viðstödd útskrift Theodórs frænda frá menntaskóla. Theodór er sonur Ellu systur hennar mömmu sem býr í Staffanstorp í Svíþjóð. Ella og Bjarni maður hennar héldu frábæra veislu og buðu uppá frábærar veitingar, m.a. hangikjöt. Útskriftin sjálf var alveg frábær en allir ættingjarnir söfnuðust saman fyrir utan skólann og fögnuðu gríðarlega þegar einn bekkur í einu stökk út um dyr skólans öskrandi og blásandi í dómaraflautur. Hver fjölskylda var með skilti með nafni síns nema á barna mynd af viðkomandi. Eftir að krakkarnir komu út og fundu fjölskylduna sína settu þau á sig plast svuntur til að vernda fínu fötin fyrir öllum blómunum sem voru síðan hengd um hálsinn á þeim. Síðan voru krakkarnir keyrðir heim í alls kyns mismunandi farartækjum sem fjölskyldan hafði útvegað. Theodór og nágranni hans voru keyrðir heim í svaka flottum gömlum blæju cadillac. Þetta var svaka skemmtilegur dagur og gaman að sjá Ingibjörgu dóttur Ellu og Bjarna og Markus mann hennar og Kasper son þeirra.Uppselt er á Hróarskeldu og erum við hamingjusamir eigendur tveggja miða á festivalið. Dettur ekkert meira í hug núna, nema að ekki gefast upp í baráttunni gegn Bandarískum heimsyfirráðum.
Rokk og ról!!! og Áfram Ekvador!!! og Áfram Ég!!!
Thursday, June 08, 2006
Íslensk Kaupmannahöfn


Já það er margt sem kallað er íslenskt í Köben jafnvel þó að það sé ekki alveg ,,ekta íslenskt,,.
Skyrið okkar er komið til Köben eins og þið kannski vitið. Það er selt í búðum sem heita Irma sem eru með dýrustu (og flottustu) matvörubúðum hérna í Danmörku. Skyrið er næstum því í eins umbúðum og heima en það stendur hinsvegar framan á dönsku umbúðunum: Skyr er tilvalið til hádegisverðar eða sem eftirréttur (sé fyrir mér að bjóða Íslendingum upp á skyr sem eftirrétt hehe).
Ég fór auðvitað valhoppandi út í Irma til að kaupa mér skyr......VONBRIGÐI!!! Danska skyrið er mun þynnra en íslenska skyrið og alveg dísætt. Ég kann best við skyr.is en danska skyrið er með svona jarðaberjakögglum í...kann ekki við það... En danska skyrið er samt mun mun betra heldur en danska jógúrtið :)
Fórum á Da Vinci code í kvöld í boði Indiska (vinnan hans Palla). Hún var bara alveg ágæt, skil ekki allar þessar óánægjuraddir. Góðir leikarar og góð samtöl í myndinni.
Í gær fór ég í bæinn með Camillu vinkonu minni (en hún er alveg óð í ,,íslenska,,skyrið. Hún er á stærri myndinni hérna fyrir ofan, mér gekk eitthvað illa að setja myndirnar á réttan stað hehe). Við lágum allan daginn í garði í miðbænum og sóluðum okkar og borðuðum ís. Hérna er veðurspáin mjög góð fyrir næstu daga, þannig að ef einhver var að spá í að fara í helgarferð til Köben, þá er þetta rétta helgin. 25 gráður næstu vikuna og heiðskýrt. Helgin fer líklega í grillveislur og útiveru :)
Við erum búin að festa kaup á miðum á Hróaskeldu, vei vei. Það verður fjör.
Monday, June 05, 2006
Hvítasunnuhelgin í Köben

Það er svo gott að fá extra langa helgi...en svo erfitt að fara í vinnuna aftur!
Annars erum við búin að hafa það mjög gott hérna um helgina.
Á föstudaginn var mjög gott veður hérna í Köben og eftir vinnu löbbuðum við aðeins um í bænum en fórum frekar snemma heim enda var vinna daginn eftir.
Eftir smá viðkomu í Det Bla Pakhus á laugardeginum eftir vinnu fórum við til Laufeyjar og Gulla, horfðum á American Idol og elduðum saman svínakótilettur, nautakjöt og ribs. Allt saman mjög gott.
Þegar við vöknuðum á sunnudeginum var þessi svakalega veðurblíða og drifum við okkur með Júlíu, Ingu, Braga, Laufey og Gulla út á Amager strönd í sólbað og huggulegheit. Við fórum í lítinn garð sem kallast fimmeyringurinn en hann er alveg við ströndina. Hvítasunnudagsmáltíðin var síðan snædd á Jensens Bofhus í góðum félagsskap.Samkvæmt veðurspánni á hitastigið að hækka í Köben með hverjum deginum og um næstu helgi á að vera yfir 20 stig og sólskin :) Vona að það gangi nú eftir. Danir eru orðnir heldur óþreyjufullir eftir sól og sumaryl þótt að ekki væri hægt að kvarta yfir veðrinu um helgina.
Mæli eindregið með víetnamska staðnum Le Le á Vesterbrogade. Þegar ég fór þangað í síðustu viku í tilefni af afmæli Arkar þá fékk ég mér sterka súpu með eggjanúðlum og andarkjöti. Maturinn var svo ferskur og góður og á góðu verði! Áætluð er önnur hópferð á þennan stað í nánustu framtíð :)
Palli er annars á fullu að læra undir próf...og ég tala næstum því bara um veðrið..þannig að þið sjáið að við höfum engar stórkostlegar fréttir :)
Hafið það gott í vikunni...hægt er að hugsa til þess að vinnuvikan er aðeins 4 dagar :)
Myndir af helginni og þegar við fórum á ljósmyndasýningu á Kongens Nytorv í Myndir 2
Thursday, June 01, 2006
matur...og meiri matur...
Við fórum á alveg geggjaðan tapas stað á föstudagskvöldið, staðurinn liggur á Nansensgade. Við fengum okkur m.a. kolkrabba, risarækjur í hvítlaukssósu, góða kartöfluréttinn (bravas eitthvað), grillspjót með kálfakjöti og lambakjöti. Þetta var allt mjög gott og stemmingin var frábær á staðnum. Á sumrin er hægt að sitja úti í bakgarði og eigum við áreiðanlega eftir að fara aftur á þennan stað og sitja úti í sólinni.
Talandi um sólina þá er hún byrjuð að láta sjá sig aftur þessi elska :) Hálfskýjað fram á sunnudag og þá 20 stiga hiti og sól :)
Það kom mjög skemmtilegur eldri danskur maður í vinnuna til mín um daginn og þegar hann frétti að ég væri íslensk þá byrjaði hann að þylja upp setningar úr Hávamálum! Þetta var nokkuð gott hjá honum miðað við að hann lærði þessar setningar árið 1930 :) Hann ætlaði varla að fara út úr búðinni eftir þetta allt saman en það er önnur saga :)
Á mánudagskvöldið fórum við heim til Guðbjargar og Magga og Heklu og borðuðum með þeim en þau fóru í gær aftur heim til Íslands. Þeirra verður saknað. Hekla er orðin svo ótrúlega stór og myndaleg, með mikið dökkt hár og hún verður áreiðanlega búin að breytast mikið þegar við sjáum hana næst...í ágúst. Óskum Guðbjörgu einnig til hamingju með að hafa náð prófinu í verkfræðinni þrátt fyrir að vera nýbúin að eignast barn. Það er nú meiri dugnaðurinn.
Gulli og Laufey eru svo rosalega dugleg í eldamennskunni og vorum við boðin í enn aðra veisluna til þeirra á sunnudagskvöldið. Laufey snaraði fram svínasteik, brúnuðum kartöflum og heitri brúnni sósu. Í eftirrétt var svo heit eplakaka og rjómi. Takk fyrir okkur :)
Annars var helgin bara ljúf, kaffihús með Ingu, Guðbjörgu og Magga, Hildi og Ágústi. Fór í Det bla pakhus með Laufey, í ræktina og horfði á sjónvarpið. Palli greyið var bara að læra um helgina og svo fór hann auðvitað að keppa í fótbolta.
Næsti gestur er Doddi frændi en hann kemur til Köben þann 20 júní og hann verður til 6 júlí. Hann ætlar líka að skella sér á Hróaskeldu. Síðan kemur Svanhildur, Deddi, Guðrún Jóna og Hlynur þann 7.júlí og dvelja í íbúð í Kaupmannahöfn í 2 vikur. Einar og Sjöfn koma til Köben um verslunarmannahelgina. Okkur hlakkar mikið til að fá þessa gesti :)
Í kvöld er ég að fara að borða á víetnömskum stað með Önnu, Örk og Elísabetu.Slíkan mat hef ég aldrei prufað og verður það spennandi.
Palli kláraði sitt fyrsta próf í dag og gekk honum bara vel.
Talandi um sólina þá er hún byrjuð að láta sjá sig aftur þessi elska :) Hálfskýjað fram á sunnudag og þá 20 stiga hiti og sól :)
Það kom mjög skemmtilegur eldri danskur maður í vinnuna til mín um daginn og þegar hann frétti að ég væri íslensk þá byrjaði hann að þylja upp setningar úr Hávamálum! Þetta var nokkuð gott hjá honum miðað við að hann lærði þessar setningar árið 1930 :) Hann ætlaði varla að fara út úr búðinni eftir þetta allt saman en það er önnur saga :)
Á mánudagskvöldið fórum við heim til Guðbjargar og Magga og Heklu og borðuðum með þeim en þau fóru í gær aftur heim til Íslands. Þeirra verður saknað. Hekla er orðin svo ótrúlega stór og myndaleg, með mikið dökkt hár og hún verður áreiðanlega búin að breytast mikið þegar við sjáum hana næst...í ágúst. Óskum Guðbjörgu einnig til hamingju með að hafa náð prófinu í verkfræðinni þrátt fyrir að vera nýbúin að eignast barn. Það er nú meiri dugnaðurinn.
Gulli og Laufey eru svo rosalega dugleg í eldamennskunni og vorum við boðin í enn aðra veisluna til þeirra á sunnudagskvöldið. Laufey snaraði fram svínasteik, brúnuðum kartöflum og heitri brúnni sósu. Í eftirrétt var svo heit eplakaka og rjómi. Takk fyrir okkur :)
Annars var helgin bara ljúf, kaffihús með Ingu, Guðbjörgu og Magga, Hildi og Ágústi. Fór í Det bla pakhus með Laufey, í ræktina og horfði á sjónvarpið. Palli greyið var bara að læra um helgina og svo fór hann auðvitað að keppa í fótbolta.
Næsti gestur er Doddi frændi en hann kemur til Köben þann 20 júní og hann verður til 6 júlí. Hann ætlar líka að skella sér á Hróaskeldu. Síðan kemur Svanhildur, Deddi, Guðrún Jóna og Hlynur þann 7.júlí og dvelja í íbúð í Kaupmannahöfn í 2 vikur. Einar og Sjöfn koma til Köben um verslunarmannahelgina. Okkur hlakkar mikið til að fá þessa gesti :)
Í kvöld er ég að fara að borða á víetnömskum stað með Önnu, Örk og Elísabetu.Slíkan mat hef ég aldrei prufað og verður það spennandi.
Palli kláraði sitt fyrsta próf í dag og gekk honum bara vel.