Friday, May 26, 2006

Lærdómsgleði og markasúld

Jæja sit hér nidrí skóla og tek mér smá frí frá ritgerdarskrifum til ad heilsa uppá mannskapinn. Já thad er ekki margt af manni ad frétta nema ad madur skólast og spilar fótbolta. Spiludum í gær, unnum 5-1 og ég skoradi mitt fyrsta mark fyrir klúbbinn eftir ad markvördur andstædingana gerdi thau grundvallarmistök ad vanmeta lengd lappa minna.
Annars hefur ekkert merkilegt gerst sídan ég villtist af leid í skólanum um daginn, fór innum vitlausar dyr og gekk inná Gwyneth Paltrow thar sem hún var ad maka lúkvolgum mysingi undir handakrikana á fremur tætingslegum órangútan apa. Sem betur fer var ég með myndavélina á mér og náði að smella af, núna bíð ég bara eftir gagntilboði frá Ekstrabladet fyrir myndina.
Hvort kom á undan eggid eda hænan?
The resluts are in! It's official!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?