Tuesday, November 15, 2005

My name is Mud....

....not to be confused with Bill or Jack or Pete or Dennis,
my name is Mud, it's always been.

Fékk allt í einu gríðarlega löngun til að skrifa eins og eitt stykki pistil, sennilega út af því að ég er hérna heima að lesa þýska gamla grein þýdda yfir á dönsku = torskiljanlegt! Helgin að baki og var hún skemmtileg eins og alltaf. Á fimmtudeginum var allt í chilli nema hvað að ég fjárfesti í korti í líkamsræktina hér í kjallaranum og fór og skokkaði aðeins og "greip í lóðin" eins og alvöru lyftingamenn segja. Ætla að reyna að koma mér í smá form og styrkja ökklann sem er ekki alveg orðinn góður enn. Verð alltaf að vera teipaður og get ekkert hoppað. Föstudagurinn var frekar óeftirminnilegur að mig minnir, ég fór á körfuboltaæfingu um kvöldið og síðan lagðist ég bara fyrir framan sjónbartið en Guðný kíkti aðeins út með Önnu.

Á laugardaginn fór síðan Guðný á Loppumarkað í Bella Center með Laufeyju og skannaði pleisið (síðan átti ég að koma með og bera allt draslið heim á sunnudeginum). Það var leikur hjá okkur í körfunni og loksins hundskuðust menn til að mæta í leik og vorum við 10. Það var ekki að sökum að spyrja að við unnum og var Gíraffinn stigahæstur með 14 auk þessa rífa niður um 10 grip og verja 6-7 skot (þar af tvö smöss í spjaldið og eitt út í eilífðina). Helvíti gott, þykist vera orðinn voða sóknarmaður hérna úti. Eftir leikinn ákváðum við nokkrir að fagna fyrsta sigri vetrarins og skelltum okkur á vinalega vínstofu þarna í grenndinni og sötruðum 2 öllara. Síðan var ákveðið að fara heim til eins stráksins með kassa af bjór og panta pizzu og spila NBA Live fram eftir kvöldi. Það var helv. gaman og enduðum við þrír að horfa á Way of the Dragon og Pumping Iron* áður en við fórum niður í bæ og hittum Gulla sem hafði verið á skóladjammi. Kíktum á Moose (ódýrasti bjórinn í miðbænum, 15 kr. stór og 10 kr. skotið), hittum Begonu sem býr á ganginum hjá okkur. Síðan tókum ég og Gulli bara Metro heim á skikkanlegum tíma.

*fyrir þá sem ekki vita er Pumping Iron heimildarmynd um Senator Arnold Schwarzenegger, gerð í kringum það þegar hann vann mr. Olympia í 7. skiptið eða eitthvað svoleiðis. Þetta var ansi sniðug mynd. Mig langaði bara að segja eitt, Arnold er Fu**in evil gaur! Hann er svo mikið gáfaðri en allir hinir steraboltarnir og hann tekur svo rosalega mindgames á þá að það hálfa....... T.d. var hann frekar laid back í einhverjum sófa, hrikalegur töffari að segja frá því þegar einhver gaur kom til hans til að leita ráða fyrir eitthvað Berlínarmót í vaxtarrækt og var spyrja álits á einhverri nýstárlegri pósurútínu sem hann ætlaði að taka. Arnold sagði þá við gaurinn að það nýjasta í Bandaríkjunum væri að öskra í pósunum, því hærri sem hendurnar væri því hærra ætti hann að öskra og því lægra sem hann hefði hendurnar, því dýpra ætti hann að öskra. Gaurinn náttúrulega leit því líkt upp til Arnold og gerði þetta bara á mótinu og gerði sig algjörlega að fífli. Arnold var bara að losa sig við keppinaut og hló ógurlega þegar hann sagði frá þessu. Þetta var geðveikt, hann var alltaf eitthvað að skjóta á gaurana sem hann var að keppa á móti og þá sérstaklega Lou Ferrigno (The unbearable Hulk, Hlunkurinn óbærilegi). Arnold fékk Terminator og öll hlutverkin sem fylgdu í kjölfarið en Lou fékk að leika Hlunkinn í sjónvarpsþáttunum. Ahhh leiðinlegt. Arnold er illskan uppmáluð einnig gaman að sjá ríkisstjórann þegar hann var búinn að vinna keppnina laid back að dissa alla og totta feita jónu helfreðinn. Mæli með þessu.

Á sunnudaginn var síðan haldið í Bella Center og Loppumarkaðurinn tæmdur. Vorum eins og afrískar burðarkellingar á leiðinni heim, Guðný með 8 poka og ég með risa sófaborð á bakinu. Mjög gott, fundum fullt af jólagjöfum. Á sunnudagskvöldið fór Guðný út að borða með Önnu, Kristínu, Elíabetu (systir Arkar), Kristínu, Hrafnhildi og mömmu Kristínar og Hrafnhildar. Þær fór á ítalskan veitingarstað þar sem að þjónarnir þóttust vera svaka sjarmörar, Elíabet var m.a. tekin upp (dregin) í svaka dans undir lifandi tónlist Ítalanna :) En maturinn var víst góður þrátt fyrir allt.

My name is Mud,
but call me Alouishus Devadander Abercrombie
That's long for Mud so I've been told.



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?